Welkomin... !

12.10.2007 15:32:06 / hafrun

Já gott fólk ég er á lífi..... :D

<3<3<3<3<3<3 

Já ég er nú bara ekkert búin að vera að nenna að gera á þessa síðu eftir að ég byrjaði í Flensborg, þar er bara nóg að gera í skólanum, flautunni og félagslífinu ;) En það sem ég hef verið að gera er nú bara margt. Ég er búin að fara á 3 böll, tvö í Flensborg sem voru busaballið á Nasa og Rockfestivalið sem haldið var á Gauk og stöng, geggjað gaman :) og svo eitt á vegum Hraðbrautar, Iðnskólanum Rvk og fjöltækniskólans sem haldið var á Nasa algjör SNILLD :haha::lol::haha: Svo er ég búin að fara á heila helgi að æfa með flautukór eða við vorum um 120 flautur að spila í samspili. Svo átti hún Vía pía afmæli í síðustu viku þann 5. okt en er að halda upp á það í kvöld og verður það bara rosa gaman ;) Svo á hún Þórdís sæta bara afmæli í næstu viku 17. okt er bara að verða 16 ára skvísa ;) til lukku með það 8) Er síðan búin að vera að vinna líka á Snælandi og maður hittir nú bara fullt af fólki þar eins og alltaf ;) Viktoría og Þórdís eru líka byrjaðar á Snælandi ;) Ætli þetta sé ekki bara það helsta í grófum dráttum sem að ég er búin að vera að gera :P En endilega að kommenta og hvetja mig til að blogga meira svo að síðan deyji ekki algjörlega 8| Later ;):D8)


» 3 hafa sagt sína skoðun

23.07.2007 11:57:53 / hafrun

Blee ;)

Já ég ætlaði nú bara að láta vita að ég er á lífi hérna :P Ég er nú ekki búin að gera margt síðastliðna daga.... ég skrapp vestur í síðustu viku og svo er ég bara búin að vera að vinna á fullu.... er að vinna næstum alla daga fram að skóla 8| En það er bara gott því að þá á ég einhvern pening þegar að ég byrja í framhaldsskólanum, því þá hef ég eginlega engann tíma til þess að vera að vinna :| En ætlaði bara að skrifa smá, er að pæla í að fara að laga til inni hjá mér og eitthvað ;) Bæjó :D8)


» 7 hafa sagt sína skoðun

03.07.2007 16:47:32 / hafrun

hæhæ ;)

Já eins og þið vitið þá er ég enþá úti á varðskipi en ég var að gera ritgerð um ferðina sem að við áttum að skila í lokin og ég ætla að setja hana hér ef einhver vill lesa hana ;) Annars er þetta bara svona í grófum dráttum hvað ég gerði... set meira um ferðina þegar að ég kem heim :D En hérna er þetta :!:

Ferðin byrjaði 18. Júní og áttum við að vera mætt niður á höfn klukkan 0800. Hitti krakkana sem heita: Goði, Elva, Ingi, Gunnlaugur(Gulli) og Guðlaugur(Sófi). Næst var haldið niður í höfuðstöðvar gæslunnar, þar keyptum við húfu og peysu sem kostaði 5000 krónur, skoðuðum allt það helsta og fórum svo niður á flugvöll til að skoða flugvélina og þyrlurnar sem gæslan á. Fengum að fara inn í flugvélina og eina þyrluna til að skoða. Fórum svo niður í skip, fengum að sjá klefana okkar og lærðum nokkrar reglur. Mamma og pabbi komu líka til þess að skoða skipið áður en að við færum. En svo klukkan 11:30 var lagt í hann. Við notuðum fyrsta daginn mest í það að koma okkur fyrir. Fengum líka nýliðafræðslu sem að fer þannig fram að fyrst er bara talað við okkur inn í setustofu en svo farið með okkur um skipið og sýnt það helsta. Fyrstu tvo vakta dagana var ég á Gulri vakt, hún var frá klukkan 0400-0800 og 1530-2000 upp í brú. Á brúarvöktum var mér kennt hvað það helsta er, hvernig á að lesa af gps og finna hvar við erum á korti, binda hnúta og splæsa. Gerðum ekkert mikið annað þessa fyrstu tvo daga nema fara á vakt, veið og tala saman. Næstu tvo daga var ég á Grárri vakt, hún var frá klukkan 0800-1300 og 1700-2000 inn í eldhúsi. Á eldhúsvöktum var ég bara að þrífa eftir matinn, fylla á kælirinn og hjálpa til við að gera næstu máltíð tilbúna. Fyrri daginn var dæluæfing en seinni daginn var æfing með sérsveitinni, það var alveg rosalega gaman að fylgjast með þeim vera að æfa þetta var bara eins og að upplifa bíómynd. Næsta dag var ég á Dökkblárri vakt, hún var frá klukkan 0800-1230 og 2000-2330 upp í brú. Við komum við á Ísafirði þennan dag þannig að seinni vaktin mín féll niður. Samt komst ég að því daginn eftir að ég hefði átt að mæta á afganginn af vaktinni eða frá 2200-2330 en ég bara vissi það ekki. Gerðum margt skemmtilegt á  Ísafirði og ég kynntist vinkonu Elvu sem heitir Magga og er bara rosalega fín stelpa. Tókum svo með okkur frá Ísafirði, kamar sem að við settum svo upp daginn eftir. En það var sunnudagur þannig að við nemarnir áttum frí og fengum að fara með í land á gúmmíbátunum. Vorum svo bara í landi og að busla í sjónum rétt fram yfir hádegi. Næsta dag var ég aftur á Dökkblárri vakt út af fríinu sem var á sunnudaginn. Gerði það vanalega og svo var líka smá námskeið um notkun línubyssu. Næstu tvo daga var ég á Ljósblárri vakt, hún var frá klukkan 0800-1700 niðri í vélarrúmi. Ég lærði svona það helsta um vélar. Fyrsta daginn var ég að gera varðskipslyklakippu og horfði á reykköfunarnámskeið. Mér var líka haldið og sprautað yfir mig fullt af vatni, sá líka slatta af hafís. Seinni daginn lærði ég að pússa kopar og veiddi tvo fiska, þorsk og ýsu. Næstu tvo daga var ég á Rauðri vakt, hún var frá klukkan 2330-0400 og 1230-1530 upp í brú. Gerði bara það sama og vanalega þarna, bara spjalla og kíkja á skip. Fyrri daginn var námskeið sem hét Skipið yfirgefið og svo var okkur leyft að heyra flautið um kvöldið. Um morguninn seinni daginn voru fjörulendingar en ég var sofandi þannig að ég missti af þeim. Klukkan 1700 var komið í höfn á Bíldudal og vorum við þar fram á sunnudag því að okkur vantaði vélstjóra. Það var bara fínt að stoppa þarna því að hátíðin Bíldudals grænar var í gangi alla helgina og við þurftum ekki að standa vaktir. Ég hitti Hrafnhildi frænku, mömmu, pabba og fullt af öðru skemmtilegu fólki sem ég þekki þarna fyrir vestan. Kynntist líka nokkrum krökkum líka. Síðustu tvo dagana var ég á Grænni vakt, hún er frá klukkan 0800-1700 á þilfari. Fyrsta daginn var ég að mála kranana og fékk að fara tvisvar inn í Hafnarfjörð til þess að ná í og skila viðgerðarmönnum. Hitti Ester og Grím á höfninni í fyrsta skiptið en svo voru þau farin þegar að ég kom aftur. Svo var líka þyrluæfing um kvöldið. Seinni daginn eða í dag var ég ekkert að gera mikið nema í kvöld þarf ég að þrífa og pakka sem er rosalega leiðinlegt því þetta er búið að vera svo gaman að ég vil ekkert fara. Svo í lokin vil ég bara þakka öllum fyrir frábæra og fróðlega ferð og Þórunni fyrir rosalega góðan mat. Þetta er pottþétt eitthvað sem að ég vildi gera aftur og mæli með því að aðrir krakkar sæki um þetta á næsta ári. Það var líka frábært hvað við nemarnir náðum strax vel saman, vorum strax orðin bestu vinir í taxanum sem skutlaði okkur til að kaupa peysur og skoða höfuðstöðvarnar í byrjun túrsins.

Takk fyrir allt ;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

29.06.2007 01:31:04 / hafrun

Hææ sætuu :Þ

<3 <3 <3 <3 <3 

Jahá.... það eru nú bara slatti af fólki sem að lítur á síðuna mína þótt að ég sé út á sjó :D En annars er bara mest lítið að frétta af mér, er bara eitthvað hérna upp í brú á vakt til klukkan 4 :P See yaa :**

<3 <3 <3 <3 <3


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.06.2007 19:27:15 / hafrun

Hellú :D

TinyPic image 

Jájá ætli maður skelli ekki smávegis bloggi hérna til þess að halda þessari síðu lifandi ;) Ég er ekki búin að gera mikið síðustu daga og það er sko satt :| Samt er líka búið að vera svoldið gaman að hafa frí... ég hef aldrei fengið svona langt frí og verið hema hjá mér 8|:D En það sem ég er búin að vera að gera er að horfa á grey's anatomy, simpsons, vera í tölvunni, fara út að labba með hundinn, tala í símann og það skemmtilegasta af öllu; vera á móturhjólinu með pabba :haha::D8) Það er ekkert smá gaman.... :D Erum búin að fara út um allt :P Síðan er eitt sem að ég hef verið að velta fyrir mér :| Hvar eru allir :o Þetta er alveg ótrúlegt ég hitti næstum aldrei neinn... 8| Þarf að fara að hringja í þetta fólk :P Shit... ég nenni ekki að vera í þessari tölvu lengur er bara að pæla í að fara aftur út að labba með hundinn eða eitthvað :D

Þangað til næst.... Hafrún ;)

msn_icons_doll_Love_jessica


» 6 hafa sagt sína skoðun

10.06.2007 15:59:55 / hafrun

Til hammó með ammó ;D

 Til hamingju með afmælið :**

Hann á afmæli í dag

Hann á afmæli í dag

Hann á afmæli hann Hjalti

Hann á afmæli í dag

 

Hann er 21 ára í dag

Hann er 21 ára í dag

Hann er 21 ára hann Hjalti

Hann er 21 ára í dag

 

 

Svo ein mynd af afmælisbarninu :D

 

 

TinyPic image


» 1 hafa sagt sína skoðun

06.06.2007 14:45:44 / hafrun

Sælt veri fólkið ;)

Lag: Wait a minute - The pussycat dolls feat. Timbaland

Skap: Bara óvenjulega hress ;D

Texti:

It's like rain on your wedding day
It's a free ride when you've already paid
It's the good advice that you just didn't take
Who would've thought ... it figures

TinyPic image

Já góðan daginn góða fólk :P Hvað segir fólkið í dag ;) ?? Já síðustu daga þá er ég nú bara búin að vera að hanga í skólanum og bíða eftir að hann verði búinn, íþróttadagur og fleira ;) Svo í gær var útskriftin okkar úr Grunnskóla.... :haha: það er GEGGJAÐ :D Ég fékk meira að segja viðurkenningu og verðlaun :haha: "Viðurkennig fyrir góð störf að félagsmálum í þágu nemenda Álftanesskóla skólaárið 2006 til 2007" Fékk bók sem heitir Þjórsárver og 5000 kr inneign í smáralindina :haha: Það var bara geggjað að fá það ;) Svo fengu allir rós og tré til þess að planta 8) Svo náttúrulega aðal málið einkunirnar og árbókin :D;) Ég er nú bara rosalega ánægð með mínar einkunnir fékk 8,5 í meðaleinkun :haha::D Svo er bara eitthvað námskeið á morgun fyrir vinnuskólann allir að mæta klukkan 10:00. Vá síðan er ég bara í fríi þangað til á mánudaginn þá byrir unglingavinnan :| Ég verð að vinna í unglingavinnunni alla virka daga í 7 vikur, aðrahverja helgi í Hagkaup og svo á varðskipi í 2 vikur :D Úff held nú að þetta sé bara að vera gott.... en ég vil sko fá COMMENT :haha::D;)

Ætla líka að óska henni Gunni frænku minni sem að er 41 árs í dag innilega til hamingju með afmælið :haha: Elska þig :*:*

Elska ykkur öll og vil segja öllum sem voru að klára 10. bekk að þetta hafa verið frábær ár ;) Takk fyrir árin ;**


» 5 hafa sagt sína skoðun

05.06.2007 13:37:34 / hafrun

Fleiri myndir og video ;)

Jájájá ég er sko búin að vera dugleg að hlaða þessu inn á síðuna en þetta er það sem er nýjast :

Myndir:

Rafting

Rafting 2

Lokaferð

Lokaferð 2

Lokaferð 3

Video:

Ester Coke

Finnur

Syngja

Strákarnir

Herbergi


» 1 hafa sagt sína skoðun

04.06.2007 18:52:26 / hafrun

Komnar myndir :D:D:D

Þá er komið að því myndirnar úr rafting eru komnar á netið :haha::haha::haha:

Endilega commentið hvað ykkur finnst um þær ;):D


» 0 hafa sagt sína skoðun

31.05.2007 22:38:23 / hafrun

Gott kvöldið góða fólk ;)

Núverandi

Lag: Ironic með Alanis Morisette

Skap: Ótrúlega gott 00

Ánægja: Náði samræmduprófunum 000

Heyrðu heyrðu ég ætla nú að fara að setja eitthvað smá líf í þessa síðu 0 Það er nú ekkert mikið að frétta af okkur held ég nú 0 Hanna er nú samt bara að fara til útlanda á sunnudaginn og ég er að fara á varðskip þannig áð frá sunnudeginum eigum við ekki eftir að sjá hvor aðra í mánuð 00 Trúi því ekki 0 Ég náði Samræmduprófunum með stæl og standa bara allar dyr opnar fyrir mér 000 Þetta eru einkunirnar mínar: ísl - 7,0 ens - 7,0 dan - 6,0 nátt - 5,5 og svo síðan í fyrra stæ - 8,0. Ég held að ég gæti bara ekki verið ánægðari 0 Svo var tannsi eitthvað að líta á mig áðan það er bara allt að skella á í þessum tannréttingum er svo að fara í klippingu klukkan hálf fimm 0 Vá ég bara skil þetta ekki ég er búin að vera svo ánægð síðustu daga..... allt búið að vera að gerast hjá mér og ég bara er ánægð yfir öllu, búin að fá allt sem að ég vildi í lok 10. bekkjar. Fara á varðskip, góð útskriftarferð, ná samræmdu, ná 203 í stæ, ná 5.stigi á flautu, ná tónfræði o.s.fr. Ég samt get eiginlega ekki bloggað meira því að ég er að fara að skella mér í klippingu.... kannski ég kíki svo bara upp í bjarkarhús í kvöld til að kíkja á Viktoríu 0 Annars bara bless þangað til seinna :*:*

Brostu á móti heiminum og þá mun heimurinn brosa á móti þér


» 3 hafa sagt sína skoðun

15.05.2007 22:14:28 / hafrun

My birthday :D:D

Já í dag á ég nú bara afmæli.... stelpan bara orðin 16 ára :haha: Þetta er annars bara búinn að vera alveg ágætur afmælisdagur fyrir utan sumt :P Þetta byrjaði nú bara á þvi að ég fékk fullt af sms-um rétt eftir tólf :D8) Svo vaknaði ég við að ég fékk sms klukkan hálf sjö það var hún Gunna frænka að senda mér.... :* Svo fór ég aftur að sofa og mamma vakti mig klukkan hálf átta og gaf mér pakka :lol: Fékk hárblásara ;) Fór svo bara í skólann og þar vorum við að gera þemaverkefnið, Þórdís kom með pakka sem að var nú bara líka hárblásari :'D og Ester kom með muffins og gaf mér :P fórum líka í prentmet að skoða.... þar fengum við muffins, kex, gos og subway :haha::haha: meira að segja á leiðinni þangað fékk ég GEÐVEIKAR fréttir :D Ég fæ að fara á varðskip í sumar, ein af 42 :haha: síðan kom ég út í skóla og fór bara í göngutúr í staðin fyrir íþróttir.... Síðan fór ég bara heim og var að bíða eftir að Linda myndi hringja,únar á meðan fór ég yfir til Bjargar og Guðrúnar og þær gáfu mér bodybutter ;) Fór svo til Lindu og við vorum bara að læra til fjögur þá var farið upp í tónlistarskóla í tónfræðipróf.... :Þ Það var bara eitthvað OFUR stutt haha :P En var samt gegðveikt erfitt :^) En yfir í annað.... um kvöldið fór ég út að borða með Hönnu á Hróa Hött.... nammnamm :) Erum svo bara búnar að vera hérna heima.... Andri kom í heimsókn og svo ætlar hún Hanna að gista..... 8)

Hafrún is out

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

13.05.2007 15:52:09 / hafrun

Takk fyrir mig ;)

Jæja þá er afmælið búið og ég vil bara þakka öllum sem komu fyrir æðislegt kvöld :D:D:D

Takk fyrir mig krakkar :*:*


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.05.2007 11:56:24 / hafrun

AFMÆLI :D:D

Já þá er komið að því.... Það verður afmæli hjá mér Laugardaginn 12.maí..... Eurovision byrjar klukkan 19:00 þannig að komið bara rétt fyrir það ;) Þetta er fyrir alla í 10.bekk Álftanesskóla bæði stráka og stelpur og þið í 9.bekk talið bara við mig ef þið viljið koma ;)8) Endilega commenta ef þið ætlið að koma ;) gaman að vita hverjir koma :haha: Luv you sætu :**

En já líka svo að fólk viti þá er ekkert fyllirí í afmælinu.... farið bara á djammið eftir það ;)


» 12 hafa sagt sína skoðun

27.04.2007 17:15:56 / hafrun

Kominn tími til :)

 <3  <3  <3

Já ég ákvað að gera hérna eitt stutt blogg..... Síðustu daga þá er ég nú ekki búin að vera að gera mikið nema bara að æfa mig á flautuna og læra. og svo í dag þá léttist ég nú bara um 7 kíló..... 0 Ekki beinlínis en ég allavega var að klára að taka 5. stig á þverflautu og þig getið ekki ýmindað ykkur hvað það var gott að vera búin með þetta 0 Búin að kvíða fyrir í marga mánuði 0 En allavega þá er ég búin að vera að leika mér að gera hérna fullt af myndum í photoshop sem að ég ætla að setja inn á síðuna þegar að ég hef tíma. Svo er Hanna að fara að koma til mín og kannski maður skelli sér bara í bíó, hver veit. Annars er ég nú bara ný búin að vera í bíó, fór með Silju á Perfect Stranger.... 0 Þetta er alveg geðveikt góð mynd og ég mæli með henni.... þú heldur að þetta sé hryllingsmynd en þetta er bara geðveik spennumynd 00 Já ætla ekki að hafa þetta lengra ætla að fara slétta á mér hárið ég er eins og úfin hæna hérna við tölvuna. Set eina mynd af auganu mínu sem að ég var að photoshopa 00 Bæjó ;*

Auga-breytt.gif


» 3 hafa sagt sína skoðun

14.04.2007 20:31:39 / hafrun

Smá hérna.... ;)

Já ég nenni ekkert að vera að blogga þannig að ég ætla bara að setja hérna inn hvað ég er búin að vera að gera og breyta á síðunni minni ;)

  • Mánaðarins
  • Bakgrunnur
  • Banner
  • Eyða og laga til
  • Myndir: Ester afmæli, Árshátíð, Páskabingó, Sveitin um páskana

Þá er þetta bara komið luv ya sætu ;**

revordlove.jpg


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
Síðan er....
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 734541 dögum
Nýtt.... !

Uppfærð: 12.10.07

BLOGG ;D